Vöruhús gagna gegnir því hlutverki að safna gögnum úr mörgum og ólíkum upplýsingakerfum, hreinsa þau og samþætta svo þau séu reiðubúin sem stuðningur við ákvarðanatöku. Vöruhús gagna er lykilþáttur undirvel heppnaða viðskiptagreindarlausn.
Innleiðing á vöruhúsi gagna er flókin og tímafrek. Að mörgum þáttum ber að hyggja við slíka innleiðingu og því mikill sparnaður fólgin í því að skipuleggja vel fyrirfram og hafa réttu sérfræðingana á þessu sviði með í ráðum.
Okkar þjónusta innifelur ráðgjöf og aðkomu á öllum stigum:
- Ráðgjöf vegna undirbúings fyrir innleiðingu
- Endurskoðun og úttektir á núverandi vöruhúsi fyrirtækja
- Þarfagreining vegna innleiðingar og aðstoð við val á verkfærum
- Hönnun og smíði á vöruhúsi gagna
Frekari upplýsingar má finna í bæklingi Platon
um vöruhús gagna