Nærtækustu dæmin um stofngögn eru: Viðskiptavinir, vörur, birgjar, starfsmenn, skipulag, reikningar og staðsetningar. Við hjá Platon skilgreinum MDM sem “formlega stýringu á stofngögnum með hliðsjón af skilgreiningum, stjórnun, högun, tækni og verkferlum.
Stýring stofngagna fjallar um:
- Að hafa einsleita sýn á gæði upplýsinga
- Að hafa sömu skilgreiningu á viðskiptalegum hugtökum
- Tryggja aðgengi að stofngögnum til að styðja rekstur viðskiptaferla
- Tryggja stjórnun á upplýsingum frá viðskiptahlið fyrirtækja og ábyrgð á gæðum gagna
- Tryggja rétt viðhald um umsýslu á stofngögnum
- Tryggja samþættingu á stofngögnum milli upplýsingakerfa og verkferla
Stýring stofngagna snýst um öll upplýsingakerfi, jafnt rekstrarkerfi sem fjárhagskerfi eða greiningarlausnir þar sem stofngögn eru notuð, búin til, þeim breytt eða þeim eytt
Frekari upplýsingar má finna í bæklingi Platon
um stýringu stofngagna