Platon logo
Iceland Iceland Sites
Share |
Home > Störf > Störf hjá Platon > Starfsþróun

Starfsþróun

Platon Academy
Platon heldur tvo árlega fyrirtækjafundi (ráðstefnur) með u.þ.b. sex mánaða millibili. Tilgangurinn með þessum ráðstefnum er að hittast jafnt til að deila þekkingu sem og skemmtisögum. Það tryggir böndin og fagmennsku okkar að hafa samræmd viðmið. Félagsleg samvinna er okkur ekki síður mikilvæg, að við eigum vini innan Platon í öðrum löndum skiptir miklu fyrir fyrirtækið í heild sinni.

Einnig eru staðbundnir atburðir á vegum Platon haldnir reglulega.

Fagleg þróun
Platon býr yfir fádæma mikilli þekkingu á sínu sviði. Við teljum mikilvægt að viðskiptavinir okkar gangi að því vísu að svo sé áfram og því þurfum við að viðhalda þessari þekkingu. Það er okkur nauðsynlegt að starfsmenn okkar þekki þau verkfæri sem þeir vinna við.

Starfsframi
Platon býður upp á spennandi starfsvettvang með miklum framamöguleikum. Starfsmenn hafa miklu sjálfir um það að ráða hvaða leið þeir kjósa sér.

Bæklingur

Fyrir flest fyrirtæki skiptir miklu máli að geta tekið réttar ákvarðanir á réttum tíma. Til að slíkt sé mögulegt þurfa réttar upplýsingar að vera til staðar. Megin starfsemi Platon er að vinna að samþættingu, mótun og nýtingu gagna, upplýsinga og þekkingar hjá fyrirtækjum.

Fáðu frekari upplýsingar um Platon í bæklingi okkar

Post Denmark

”Eins og svo víða annarsstaðar þá voru upplýsingarnar til inni í fyrirtækinu, en við höfðum ekki nógu sveigjanlegt umhverfi til að styðja rétta dreifingu á þeim um fyrirtækið.”

Herman Petersson,
Post Denmark
Reykjavik
Suðurlandsbraut 22
IS 108 Reykjavík
T: + 354 895 8605, +354 895 8606
Contact
Copyright © 2011 Platon. All right reserved.
Terms of use | Private policy | Sitemap | Contact