Platon logo
Iceland Iceland Sites
Share |
Home > Störf > Störf hjá Platon > Platon sem vinnustaður

Platon sem vinnustaður

“Við stöndum þétt saman og hvergi skortir tækifæri til að deila þekkingu.”

Andrúmsloft samvinnu & samfélags
þáttur í velgengni okkar í þátíð, nútíð og framtíð. Við leggjum áherlsu á samvinnu og að starfsmenn deili þekkingu og reynslu. Þannig erum við betur í stakk búin til að veita viðskiptavininum bestu mögulegu þjónustu.

Starfsmenn Platon eiga í samskiptum sín á milli á margvíslegan hátt. T.a.m. er tvisvar á ári haldin fyrirtækjaráðstefna hvar starfsmenn allra skrifstofa hittast og deila jmeð sér þekkingu og kynnast hver öðrum jafnt faglega sem í leik.

Frelsi með ábyrgð
Við trúm því að frelsi með ábyrgð sé besta leiðin til að allir ná hámarks árangri; jafnt starfsmaðurinn, viðskiptavinurinn og Platon.

Hvatinn felst í að viðhalda fagmennsku og vilja til að veita viðskiptavini allra bestu þjónustu. Þannig skila starfsmenn okkar mestu virði fyrir sig jafnt og viðskiptavininn. Gildi okkar og það umhverfi sem við veitum starfsmanninum stuðla að því að við náum þessu fram.

Starfsmenn Platon hafa frelsi til að skipuleggja vinnutímann sjálfir í samstarfi við viðskiptavininn. Mestu máli skiptir að besta niðurstaða fáist fyrir viðskiptavininn og hann fái sem mest virði út úr okkar vinnu. Þetta er á ábyrgð starfsmannana.

Alþjóðlegur vinnustaður
Platon er vaxandi fyrirtæki á alþjóðavísu og hyggst á frekari landvinninga í nánustu framtíð. Í dag eru Platon staðsett í Kaupmannahöfn, Árósum, Reykjavík, Helsinki, Osló og Stokkhólmi.

Með þessu er opin sá möguleiki að starfsmenn geti flakkað á milli landa hafi þeir áhuga og má því segja að atvinna hjá Platon sé atvinna á alþjóðavettvangi.

Bæklingur

Fyrir flest fyrirtæki skiptir miklu máli að geta tekið réttar ákvarðanir á réttum tíma. Til að slíkt sé mögulegt þurfa réttar upplýsingar að vera til staðar. Megin starfsemi Platon er að vinna að samþættingu, mótun og nýtingu gagna, upplýsinga og þekkingar hjá fyrirtækjum.

Fáðu frekari upplýsingar um Platon í bæklingi okkar

Platon Insight

Aðferðafræðin okkar, Platon Insight®, tekur á öllum þáttum upplýsingastýringar. Frá stefnumótun til innleiðingar og reksturs.

Fáðu frekari upplýsingar um Platon og Platon Insight® í bæklingi okkar
Reykjavik
Suðurlandsbraut 22
IS 108 Reykjavík
T: + 354 895 8605, +354 895 8606
Contact
Copyright © 2011 Platon. All right reserved.
Terms of use | Private policy | Sitemap | Contact