Fyrirtækið hefur vaxið innan frá síðan þá og er nú markaðsleiðandi fyrirtæki á sviði upplýsingastýringar enda byggt á þeim trausta grunni er lagður var í upphafi.
- Sjálfstæði. Platon hefur alla tíð verið óháð birgjum og seljendum verkfæra. Við trúum því að ekki sé hægt að horfa hlutlaust á málin án þess að vera óháðir og er hagur viðskiptavinarins eilíflega hafður að leiðarljósi.
- Okkar sérhæfing er upplýsingastýring. Í fyrstu var áherslan aðallega á uppbyggingu á vöruhúsum gagna og viðskiptagreind. Í dag sjáum við hinsvegar þörf fyrir að horfa á fleirri hluti til að getað skila viðskiptavinum okkar frekara virði. Við teljum nauðsynlegt að halda fókus til að vera bestir á okkar sviði.
- Við viljum eingöngu ráða hæfasta fólkið á okkar sviði. Við viljum að allir okkar starfsmenn geti skilað bæði viðskiptavinum okkar og Platon virði frá fyrsta degi. Ráðgjafar okkar búa yfir mikilli þekkingu og reynslu sem nýtist á öllum sviðum upplýsingastýringar.
- Við leggjum áherslu á þekkingarmiðlun bæði til viðskiptavina og starfsmanna okkar.. Það er okkar trú að folk vilji læra og deila með sér þekkingu til að tryggja hátt þekkingarstig fyrirtækisins í heild sinni. Þannig ætti heildar þekking fyrirtækis að vera meiri en samanlögð þekking einstaklinganna. Þessi sýn okkar hefur orðið til þess að við höfum þróað með okkur Platon Insight® sem er okkar þekkingarrammi utan um upplýsingastýringu.
Okkar stefna er: “Að hjálpa viðskiptavinum okkar að stýra og nýta upplýsingar sem stefnumótandi auðlind með ráðgjöf og þjónustu byggða á heildrænni aðferðafræði á sviði upplýsingastýringar”.
Fyrirtækið er að fullu í eigu starfsmanna og þannig hefur okkur tekist að halda réttri stefnu, í stað þess að einblína of mikið á fjárhagslega afkomu fyrirtækisins.
Platon á í góðu sambandi við framleiðendur verkfæra á sviði upplýsingastýringar, eins og IBM, Microsoft, Oracle, SAP, HP, SAS og aðra leiðandi framleiðendur á sínu sviði. Sambönd okkar, sem og uppbygging á okkar þekkingu innanhús, gerir það af verkum að við erum ávalt með nýjustu tækni og lausnir á takteinum og þekkjum markaðinn og framleiðendurnar vel.