Platon logo
Iceland Iceland Sites
Share |
Home > Þjónusta > Platon Insight® > Innihald

Platon Insight®

Alveg síðan Platon A/S var stofnað hefur fyrirtækið einbeitt sér að því að fanga, byggja upp og deila þekkingu sem nauðsynleg er til að skila vel heppnuðum lausnum á sviði upplýsingastjórnunar (vöruhús gagna, viðskiptagreind, meðhöndlun stofnupplýsinga og lýsigagnastýringu).

Afurð þessarar vinnu er "best-practises" aðferðafræði sem snertir á öllum flötum stjórnunar og notkunar á upplýsingum sem eign fyrirtækis líkt og um fjárhagslegar eignir væri að ræða. Aðferðafræðin hjálpar til við að skilgreina og reka verkefni sem framfylgja þessu skref fyrir skref, koma á réttum strúktúr innan fyrirtækis sem styður slíka vinnu. Horfa þarf jafnt á högun, tækni, uppbyggingu fyrirtækis, staðla og reglur. Aðferðafræðin innifelur meira að segja í sér hvernig ganga á um upplýsingar til jafns við aðrar eignir á daglegum grundvelli, að tryggja að upplýsingar, samþættingar og umbreytingar skili sér inn í virðiskeðjuna á réttan hátt.

Það sem gerir þessa aðferðafræði svo sérstaka er hversu víðtæk hún er á sviði upplýsingastjórnunar og líka hversu djúpt er kafað eftir hverju smáatriði. Hún segir nákvæmlega hvernig fást á við a.m.k. 100 aðgerðir sem nauðsynlegar eru á þessu sviði. Rúmlega 15.000 klukkustundir hafa farið í þróun hennar og þar sem bestu aðferðir, þekking og reynsla þróast með tímanum verður haldið áfram að þróa aðferðafræðina. Aðferðafræðin er sett upp með það fyrir augum að aðlaga megi hana að þörfum hvers fyrirtækis.

Það sem gerir hlutina síðan sérstaklega áhugaverða er sú staðreynd að Platon hefur gert fyrirtækjum kleift að nýta sér aðferðafræðina og aðlaga að eigin þörfum. Segja má að búið sé að taka þá þekkingu sem til er á sviði upplýsingastýringar, brenna hana á disk og bjóða hana fyrirtækjum til notkunar. Það gerir þeim fyrirtækjum sem það gera það mögulegt að byggja upp heilstæða og samhæfða stefnu til að skapa sýn á upplýsingar sem eign fyrirtækis mögulega - á eins stuttum tíma og mögulegt er. Margir heimskunnir sérfræðingar á sviði upplýsingastýringar, s.s. Larry English og Claudia Imhoff, hafa metið aðferðafræðina og eru sammála um að hún eigi sér ekki hliðstæður.

Frekari upplýsingar má finna í bæklingi um Platons Insight® eða horft á myndaband um Platons Insight®

Platon Insight

Aðferðafræðin okkar, Platon Insight®, tekur á öllum þáttum upplýsingastýringar. Frá stefnumótun til innleiðingar og reksturs.

Fáðu frekari upplýsingar um Platon og Platon Insight® í bæklingi okkar

DSB

”Verkefni af þessari stærðargráðu er ekki hægt að leysa á einni nóttu, því þurfti DBS leiðsögn í hvernig leysa ætti verkefnið.”

Søren Skovdahl,
DSB
Reykjavik
Suðurlandsbraut 22
IS 108 Reykjavík
T: + 354 895 8605, +354 895 8606
Contact
Copyright © 2011 Platon. All right reserved.
Terms of use | Private policy | Sitemap | Contact